Kennarar á mið– og unglingastigi
Patreksskóli er um 100 barna skóli, með 10 bekkjardeildir og efstu deild leikskóla. Skólinn er með veglegt íþróttahús og sundlaug í örfárra skrefa fjarlægð. Patreksskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Verkmenntun er áhersluatriði og tenging við atvinnulíf staðarins. Fjölbreyttir kennsluhættir og einstaklingsmiðað nám og vinna með styrkleika nemenda er í fyrirrúmi.
Skrifað: 13. júlí 2020
Starfssvið
- Kennari á unglingastigi með hæfni í kennslu stærðfræði og tungumála.
- Kennari á miðstigi
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu með sérstaka hæfni á grunnskólastigi
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Reynsla af teymisvinnu kostur
Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2020
Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og við að útvega húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir. Umsóknir skulu berast á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is