Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Kennari óskast í Bíldudalsskóla
Viltu slást í hóp kennara með faglegan metnað og starfsgleði að leiðarljósi? Bíldudalsskóli leitar eftir kennara sem getur tekið að sér fjölbreytta kennslu í 1. – 10. bekk. Möguleikar á 70% – 100% starfi.
Skrifað: 18. febrúar 2022
Samskipti, samvinna og sköpun – einkunnarorð Bíldudalsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur nám og kennir í samráði við stefnu Bíldudalsskóla
- Sjónlistir
- Íslensku sem annað mál
- Sérkennslu
- Íþróttir
- Tekur þátt í teymisvinnu
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Reynsla af sérkennslu, sjónlistarkennslu eða annarri kennslu æskileg
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Reynsla af teymisvinnu er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2022
Umsóknir sendist á elsa@vesturbyggd.is. Nánari upplýsingar gefur Elsa Ísfold Arnórsdóttir, skólastjóri Bíldudalsskóla í síma 450 2333 og 699 3422