Hoppa yfir valmynd

Kennari við Patreks­skóla

Vilt þú vera hluti af metn­að­ar­fullum starfs­manna­hópi þar sem skap­andi og fjöl­breyttir kennslu­hættir eru hafðir að leið­ar­ljósi?


Skrifað: 25. febrúar 2025

Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Lögð er áhersla á teymiskennslu/vinnu.

Starfssvið

50-100% starf.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2025

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðardóttir Berg, skólastjóri Patreksskóla og umsóknir sendist á joninas@vesturbyggd.is.

Skólastjóri Patreksskóla

JHSB

joninas@vesturbyggd.is/+354 450 2320