Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Keyrðu kjálkann í sumar og ferða­gjöfin

Mark­aðs­átakið „Keyrðu kjálkann í sumar“ er hafið og er átakinu ætlað að varpa ljósi á alla þá fjöl­breyttu afþrey­ingu sem er á Vest­fjörðum. Á kjálk­anum má finna yfir 100 veit­inga­staði, 70 gisti­staði og rúmlega 100 skipu­lagða viðburði. Nálgast má allar upplýs­ingar um ferða­þjón­ustuna á Vest­fjörðum inn á vestur.is


Skrifað: 29. júní 2020

Vesturbyggð hvetur alla til að kynna sér þá staði í sveitarfélaginu þar sem hægt er að nota ferðagjöfina. Allir einstaklingar, með lögheimili á Íslandi, fæddir 2002 og fyrr fá Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr frá íslenska ríkinu. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og efla þannig íslenska ferðaþjónustu. Hægt er að nota ferðagjöfina í afþreyingu, gistingu, mat og skemmtun.

Sækja þarf gjöfina á Ísland.is með innskráningu. Ferðagjöfin er síðan notuð í gegnum app sem heitir Ferðagjöf og er sótt í App store eða Play store fyrir snjallsíma. Einnig er hægt að nýta ferðagjöfina beint í gegnum Ísland.is fyrir þá sem ekki notast við snjallsíma.

Nýta má Ferðagjöf hjá skilgreindum fyrirtækjum innan ferðaþjónustunnar sem hafa skráð sig til þátttöku. Allar nánari upplýsingar má finna á ferðalag.is. Gildistími ferðagjafarinnar er til og með 31.desember 2020.

Búum til minningar á ferðalagi innanlands og styðjum við bakið á íslenskri ferðaþjónustu !