Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Könnun á atvinnuþátttöku ungmenna
Vestfjarðastofa stendur fyrir örkönnun varðandi atvinnuþátttöku ungs fólks og námsmönnum á Vestfjörðum. Eins og nafnið gefur til kynna er könnunin stutt og tekur aðeins örfáar mínútur að svara.
Skrifað: 12. maí 2020
Í henni er verið að leitast eftir að skoða áhuga ungs fólks á atvinnuþátttöku á Vestfjörðum í sumar. Við hvetjum alla sem er eru í námi og hafa hug á að leita sér að atvinnu á svæðin að svara en með því er verið að auðvelda sveitarfélögum og fyrirtækjum á svæðinu hvaða áherslur skuli leggja þegar tekið verður þátt í sérstöku átaki ríkisstjórnar varðandi sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri.
Linkinn á könnuninni er að finna hér