Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Kveðjur til nágranna okkar á norð­an­verðum Vest­fjörðum

Bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar sendir íbúum á Flat­eyri og Suður­eyri hlýjar kveðjur vegna snjóflóða sem féllu á Flat­eyri og í Súganda­firði í gær.

Það er áminning um hinn ógur­lega kraft sem nátt­úru­öflin búa yfir þegar fréttir af snjóflóðum á Flat­eyri og í Súganda­firði bárust seint í gærkvöldi.

Hugur okkar allra í Vest­ur­byggð er hjá nágrönnum okkar í norðri sem hafa staðið í ströngu síðasta sólar­hringinn og eru enn að.


Skrifað: 15. janúar 2020