Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Kynn­ing­ar­fundir og mat á umhverf­isáhrifum

Vest­fjarða­vegur um Dynj­and­is­heiði og Bíldu­dals­vegur frá Bíldu­dals­flug­velli að Vest­fjarða­vegi á Dynj­and­is­heiði.

Vega­gerðin hefur lagt fram frummats­skýrslu um mat á umhverf­isáhrifum ofan­greindrar fram­kvæmdar. Um er að ræða samtals 70 km langa vega­gerð.


Skrifað: 20. janúar 2020

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða. Dýrafjarðargöng munu ekki nýtast að fullu fyrr en lagður hefur verið heilsársvegur um Dynjandisheiði með tengingu til Bíldudals.

Kynning á frummatsskýrslu: Frummatsskýrsla er til kynningar hjá Bókasafni Bílddælinga, Bókasafninu Ísafirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni. Einnig er hún aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is og á vef Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is.

Kynningarfundir: Vegagerðin stendur fyrir eftirfarandi kynningarfundum um niðurstöður frummatsskýrslu og eru allir velkomnir:

  – Þriðjudaginn 4. febrúar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði kl. 17:00.

  – Miðvikudaginn 5. febrúar í Baldurshaga á Bíldudal kl. 17:00.

Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. febrúar 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.