Hoppa yfir valmynd

Lagning ljós­leiðara í þétt­býli

Míla í samstarfi við Vest­ur­byggð hyggst leggja ljós­leiðara í þétt­býli Vest­ur­byggðar á árinu 2025. Um er að ræða fram­kvæmdir á Patreks­firði.


Skrifað: 20. febrúar 2025

Framkvæmdin er styrkt með átaki  stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Vesturbyggð var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í tilgreindum bæjarkjarna næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

geir@vesturbyggd.is/+354 450 2300