Látrabjarg - tillaga að stjórnunar- og verndaráætlun
Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynninga drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Látrabjarg.Landið var friðlýst í mars árið 2021.
Áætlunin er unnin af fulltrúum Umhverfisstofnunar, fulltrúum landeigenda og fulltrúa Vesturbyggðar. Eins er hún unnin í góðu samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára.
Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drög að áætluninni, skilafrestur athugasemda er til og með 7. maí 2024.
Nánari upplýsingar má fá á vef Umhverfisstofnunar.