Laus störf við leikskólann Araklett
Leikskólinn Araklettur á Patreksfirði óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirfarandi stöður sem fyrst:
Starfsmann á deild og afleysingarstarfsmann.
Um er að ræða tvær 100% stöður en einnig má hugsa sér sveigjanlegri vinnutíma ef það fullnægir þörfinni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Araklettur er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá 14 mánaða – 5 ára. Skólinn er „Skóli á grænni grein“ og vinnur eftir „Lífsmenntarstefnunni“ (Value Based Education). Virðing, traust og gleði eru aðaláhersluþættir leikskólans.
Skólinn nýtur sérfræðiþjónustu frá Tröppu og Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu, sjá tengil hér fyrir neðan.
Hæfniskröfur
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Reglusemi og stundvísi
- Færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og metnaðurfyrir að gera ætið sitt besta
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Að vera tilbúin/n að læra og tileinka sér starf með ungum börnum
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 450 2343 og 833 8343. Umsóknum skal skila í netpósti til leikskólastjóra.