Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Lausar stöður í skólum Vest­ur­byggðar

Vest­ur­byggð er á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og saman­stendur af tveim þétt­býlis­kjörnum Patreks­firði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Einstök nátt­úru­fegurð prýðir sunn­an­verða Vest­firði og hér er ótal margt að sjá og upplifa.


Skrifað: 24. apríl 2020

Starfsauglýsingar

Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fl. Náttúrufegurð er mikilfengleg, en m.a. Rauðisandur og Látrabjarg er innan sveitarfélagsins. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!

Patreksskóli

Patreksskóli er um 100 barna skóli, með 10 bekkjardeildir og efstu deild leikskóla. Skólinn er staðsettur í miðju þorpinu með veglegt íþróttahús og sundlaug í örfárra skrefa fjarlægð. Patreksfjörður er barnvænn staður og hér er gott að búa. Patreksskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Verkmenntun er áhersluatriði og tenging við atvinnulíf staðarins. Fjölbreyttir kennsluhættir og einstaklingsmiðað nám og vinna með styrkleika nemenda er í fyrirrúmi.

Umsjónarkennarar

  • Yngsta deild 100% staða
  • Miðdeild 100% staða
  • Efsta deild tvær 100% stöður

Sérgreinakennarar

  • 100% staða íþróttakennara
  • 70% staða heimilisfræðikennara
  • 50-70% staða sjónlistakennara
  • 50-70% staða handmenntakennara

Leikskóladeild

  • Deilarstjóri leikskóladeildar 100% staða
  • Leikskólakennari / leikskólaliði 100% staða

Bíldudalsskóli

Í Bíldudalsskóla eru 29 nemendur og kennt er í samkennslu milli árganga. Í skólanum starfa tíu starfsmenn ásamt tveimur matráðum í mötuneyti skólans sem staðsett er í annarri byggingu.

Á leikskólanum Tjarnarbrekku eru 10 börn sem skiptast niður á tvær deildir, yngri og eldri deild. Á leikskólanum starfa þrír starfsmenn ásamt leikskólastjóra og tveimur matráðum í sameiginlegu mötuneyti með grunnskólanum.

Bíldudalsskóli og Tjarnarbrekka leggja áherslu á að vera fremstir meðal jafningja varðandi upplýsingatækni í skólastarfi. Í samskiptum er byggt á áherslum úr hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf þar sem sérstakar áherslur eru á fjölbreytta kennsluhætti og nemendamiðað nám, vaxtarhugarfar, leiðsagnarnám og sköpun. Þá er lögð áhersla á að efla samstarf við foreldra og styrkja tengsl þeirra við skólasamfélagið og eru einkunnarorð skólans: samskipti – samvinna – sköpun!

Bíldudalsskóli

  • 100% staða grunnskólakennara á yngsta stigi
  • 35% staða íþróttakennara með möguleika á hærra starfshlutfalli

Tjarnarbrekka

  • 100% staða deildarstjóra
  • 100% stöður leikskólakennara

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2020

Vesturbyggð leitar að einstaklingum með tilskilda menntun, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, samskiptahæfileika og hæfni til að sýna ábyrgð og frumkvæði í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Sveitarfélagið Vesturbyggð aðstoðar við búslóðaflutning og við að útvega húsnæði í sveitarfélaginu. Frekari upplýsingar veitir Arnheiður Jónsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Umsóknir skulu berast á vesturbyggd@vesturbyggd.is

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300