Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Lausar stöður við Patreks­skóla

Patreks­skóli er um 100 barna skóli, með 10 bekkj­ar­deildir og efstu deild leik­skóla. Skólinn er með veglegt íþróttahús og sund­laug í örfárra skrefa fjar­lægð. Patreks­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi og einkunn­arorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Verk­menntun er áherslu­at­riði og tenging við atvinnulíf stað­arins. Fjöl­breyttir kennslu­hættir og einstak­lings­miðað nám og vinna með styrk­leika nemenda er í fyrir­rúmi.


Skrifað: 5. júní 2020

Starfsauglýsingar

Eftirfarandi stöður  eru lausar til umsóknar fyrir næsta skólaár.

Kennari á unglingastigi með hæfni í kennslu stærðfræði og tungumála.

Kennari á  miðstigi

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu með sérstaka hæfni á  grunnskólastigi
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Deildarstjóri yngsta stigs

Starfssvið

  • Deildarstjóri er millistjórnandi og ber ábyrgð á skólahaldi á yngsta skólastigi.
  • Fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila.
  • Umsjón með sérúrræðum nemenda í samráði við kennara og aðra stjórnendur.
  • Skipulagning heildstæðs skóla fyrir 5–9 ára nemendur, þ.m.t. frístund
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Er í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og í samræmi við aðalnámskrá leik og  grunnskóla og skólastefnu Vesturbyggðar

Menntunar og hæfniskröfur deildarstjóra yngsta stigs Patreksskóla

  • Einstaklingur með leyfisbréf til kennslu   sem er metnaðarfullur og víðsýnn.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði æskileg
  • Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum er æskileg
  • Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfileikar og hæfni til að leiða verkefni og tilbúin til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Reynsla af teymisvinnu kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2020

Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og við að útvega húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Frekari upplýsingar um störfin gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir. Umsóknir skulu berast  á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is