Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Laust starf á leik­skól­anum Arakletti

Við leitum að leik­skóla­kennara, leik­skóla­liða eða einstak­lingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi.

Araklettur er 3 deilda leik­skóli á Patreks­firði. Lögð er áhersla á lífs­mennt; lifandi gildi í mann­legum samskiptum, leik og læsi. Vakin er athygli á Skóla­stefnu Vest­ur­byggðar.


Skrifað: 29. nóvember 2018

Starfsauglýsingar

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Stundvísi og reglusemi
Góð íslenskukunnátta

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 100% og umsóknarfrestur til 14.12.2018 eða sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hallveig Ingimarsdóttir leikskólastjóri í síma 450-2343 eða 833-8343.

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342