Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Húsvörður félagsheimilisins Baldurshaga
Vesturbyggð óskar eftir að ráða starfsmann í 40% starf húsvarðar í félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal frá og með 1. desember 2021.
Starfið felur í sér m.a.
- Daglegan rekstur
- Bókun á húsnæði
- Smávægilegt viðhald
- Þrif á húsnæði og innkaup
- Halda umhverfi snyrtilegu
- Útgáfa almennra reikninga
- Samþykkja reikninga
- Ásamt öðrum verkefnum sem upp koma í starfinu
Hæfniskröfur
- Rík áhersla lögð á jákvæðni og sveigjanaleika í samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar æskilegir
- Ábyrgð, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2021
Laun fara eftir samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið fást hjá Sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Umsóknir sendist til geir@vesturbyggd.is eða Ráðhús Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.