Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Laust starf við leik­skólann Araklett

Araklettur er 3 deilda leik­skóli á Patreks­firði. Lögð er áhersla á; lifandi gildi í mann­legum samskiptum, leik og læsi. Vakin er athygli á skóla­stefnu Vest­ur­byggðar og jafn­rétt­isáætlun Vest­ur­byggðar. Skólinn nýtur sérfræði­þjón­ustu frá Tröppu og Litlu kvíða­með­ferð­ar­stöð­inni.


Skrifað: 4. júní 2021

Starfsauglýsingar

Um er að ræða eina 100% stöðu í afleysingu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2021

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmunda Júlía Valdimarsdóttir í síma 450 2343 eða 868 4298 og tölvupósti araklettur@vesturbyggd.is

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342