Leiðbeinandi í frístund á Bíldudal
Bíldudalsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli. Í grunnskólanum eru 23 nemendur og í leikskólanum eru 10 en fer fjölgandi. Í Bíldudalsskóla er Uppbyggingarstefnan höfð að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru samskipti, samvinna og sköpun. Fjölbreyttir kennsluhættir, einstaklingsmiðað nám, samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.
Skrifað: 22. október 2020
Í Bíldudalsskóla er eftirfarandi staða laus til umsóknar:
Leiðbeinandi í frístund
32% staða leiðbeinanda í frístund. Starfið felst í að leiðbeina börnum í leik og starfi, aðstoða við skipulag frístundastarfs, samvinna við börn, starfsfólk skólans, foreldra o.fl.
Hæfniskröfur
- Áhugi á að vinna með börnum
- Reynsla af starfi með börnum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðir og góðir samstarfshæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2020
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Allar nánari upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450 2333 eða 849 8976. Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.