Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Leik­skóla­kennari - Araklettur

Leitað er eftir leik­skóla­kennara í 100% stöðu, við leik­skólann Araklett á Patreks­firði.


Skrifað: 9. febrúar 2023

Starfsauglýsingar

Um leikskólann

Leikskólinn Araklettur er í rífandi uppbyggingu eins og samfélagið allt á Patreksfirði og við leitum að drífandi, hugmyndaríkum og lausnarmiðuðum leikskólakennara  til að taka þátt í þessari uppbyggingu með okkur. Á leikskólanum Arakletti eru núna 40 börn en fyrirhuguð er stækkun og breytingar á leikskólanum sem mun gera pláss fyrir allt að 20 börn í viðbót. Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og vinátta og endurspeglast þau vel í starfi leikskólans, þar sem áhersla er lögð á frjálsan leik sem náms- og þroskaleið barnsins. Við vinnum markvisst með að efla málþroska, félagsþroska og ekki minnst að minnka lætin, til að ýta undir tækifærin til náms og þroska í gegnum leikinn. Við erum Vináttuleikskóli og erum að eflast í hugmyndafræði Vináttu/Blæs þar sem fjölbreytileiki og umburðarlyndi eru hornsteinar vináttunnar. Okkur langar mikið til að efla útikennsluna og væri ekki verra ef þú hefðir áhuga á að sinna henni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun barnanna.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs leikskólans undir stjórn leikskólastjóra og/eða deildarstjóra.
  • Taka þátt í gerð skólanámsskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Önnur verkefni er varða uppeldi og menntun barnanna.
  • Og auðvitað að vinna samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Gjarnan sérhæfð hæfni á leikskólastigi.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Góð íslenskukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2023

Laun eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttafélags og sambands íslenskra sveitafélaga.

Vakin er athygli á því að ef við náum ekki að ráða leikskólasérkennara og leikskólakennara kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Allir einstaklingar, óháð kyni og búsetu eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn fylgi, leyfisbréf, ferlisskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri.

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342