Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Leik­skólinn Araklettur - Sérkennslu­stjóri

Leitað er eftir sérkennslu­stjóra til starfa á Arakletti á Patreks­firði í 50% starf.


Skrifað: 5. ágúst 2022

Starfsauglýsingar

Araklettur er þriggja deilda leikskoli fyrir 14 mánaða – 6 ára. Við vinnum með Uppeldi til ábyrgðar sem okkar uppeldis- og agastefna. Uppeldi til ábyrgðar stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat.

Leikskólinn byggir einnig starf sitt á kenningum John Dewey um að læra af reynslunni, þar sem börnin eru virkir þátttakendur í skipulagningu og framkvæmd leikskólastarfsins. Leikurinn er náms- og þroskaleið barnsins og er mikilvægt að leiknum sé gefinn góður tími og nægt rými í leikskólanum til að þróast.

Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og Vinátta.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu. Eitt meginverkefni sérkennslustjóra er að vera faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.
  • Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim.
  • Miðlar fræðslu til starfsmanna er tengist sérkennslu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, Þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsnám í sérkennslufræðum eða öðru sem nýtist í starfi æskilegt.
  • Frumkvæði í starfi, jákvæðni, sjálfstæð vinnubrögð og samskiptahæfni.
  • Góð íslenskukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2022

Laun eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttafélags og sambands íslenskra sveitafélaga.

Vakin er athygli á því að ef við náum ekki að ráða leikskólasérkennara og leikskólakennara kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn fylgi, leyfisbréf, ferlisskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmunda Júlía Valdimarsdóttir, leikskólastjóri, araklettur@vesturbyggd.is  síma 450 2343 eða 868 4298.

 

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342