Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Líkams­þjálfun 60 ára og eldri

Vest­ur­byggð kynnir líkams­þjálfun fyrir 60 ára og eldri. Æft verður í Bröttu­hlíð á miðviku­dögum klukkan 10:00 í allan vetur. Fyrsti tími verður miðviku­daginn 25. sept­ember. Leið­bein­andi er Kristín Brynja Gunn­ars­dóttir íþrótta­fræð­ingur. Hver og einn æfir á sínum forsendum á sínum hraða eins og hann treystir sér til. Æft er í íþróttasal eða tækjasal. Hvetjum fólk til að mæta og njóta hreyf­ingar í öruggu umhverfiundir tryggri leið­sögn og enda svo jafnvel í heita pott­inum


Skrifað: 20. september 2019

Auglýsingar