Hoppa yfir valmynd

Lista­hátíð Samúels 2024

Lista­hátíð Samúels verður haldin að Braut­ar­holti í Selárdal á vegum Félags um lista­safn Samúels helgina 19.-21. júlí. Þann 17. júlí var Gerhard König, mynd­list­ar­maður sem hefur unnið ötul­lega að endur­reisn safnins, sæmdur ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu fyrir störf í þágu varð­veislu íslenskrar menn­ing­ar­sögu.


Skrifað: 18. júlí 2024

,

Aðgangur er 12.000 kr. og er innifalin súpa á föstudagskvöldinu og ljúffengur kvöldverður á laugardagskvöld. Miðasala fer fram á tix.is.

Dagskráin er á þessa leið:

Föstudagur

  • 18:00 Athöfn í kirkjunni – Guðni Rúnar Agnarsson. Sýnd kvikmyndin Steyptir draumar eftir Kára G. Schram og Ólaf J. Engilbertsson
  • 19:00 Súpa
  • 20:00 Leiðsögn að Uppsölum – Elfar Logi Hannesson og Kári G. Schram.

Laugardagur

  • 12:00 Boðið upp á gönguferðir með leiðsögn í Verdali og Vatnahvilft.
  • 13:00 Flugdrekasmiðja fyrir fjölskyldur
  • 15:00 Loji Höskuldsson og Þorvaldur Jónsson opna sýninguna Á leiðarenda í listasafninu.
  • 16:00 Einar Már Guðmundsson – sögustund í kirkjunni. Á þessu ári eru 140 ár frá fæðingu Samúels og verða lesnar upp nokkrar sögur sem birtast í bókinni Steyptum draumum sem fjallar um líf og list Samúels. Sýnd verður kvikmyndin Steyptir draumar eftir Kára G. Schram og Ólaf J. Engilbertsson.
  • 17:00 Leiðsögn um verk Samúels, bæði höggmyndir og málverk. Gerhard König segir frá viðgerðum á verkunum.
  • 18:00 Kvöldverður í tjaldinu
  • 20:00 Tónleikar í kirkjunni: Skúli mennski, Krummi Björgvins, Kraftgalli með dj-sett.
  • 22:00 Brekkusöngur við ströndina