Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Lögreglu­mann vantar á Patreks­fjörð

Lögreglu­stjórinn á Vest­fjörðum auglýsir eftir umsóknum um stöðu lögreglu­manns með starfs­stöð á Patreks­firði. Umsókn­ar­frestur er til og með 13. ágúst nk. og skal umsóknum skilað til lögreglu­stjórans á Vest­fjörðum, Hafn­ar­stræti 1, 400 Ísafirði eða sendar á netfangið umsoknVF@logreglan.is. Skipað verður í stöðuna frá og með 1. sept­ember 2018.


Skrifað: 10. ágúst 2018

Auglýsingar, Starfsauglýsingar

Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landsambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100%.  Um er að ræða vaktavinnu með bakvaktarskyldu.

Um verksvið og ábyrgð lögreglumanns er vísað til 11. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu.

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.  Vakin er athygli á að heimilt er að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð, góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í hóp eru nauðsynlegir eiginleikar. Góð staðarþekking og aukin menntun sem nýtist í starfi er kostur.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta.  Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til þess að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn, í síma 444 0404, eða í netfangið hlynur.snorrason@logreglan.is

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum,
Karl Ingi Vilbergsson.