Hoppa yfir valmynd

Lokun á hluta Brunna

Loka þarf tíma­bundið fyrir akstur gegnum Brunna á Patreks­firði vegna gatna­fram­kvæmda. Gatan verður lokuð á ákveðnum kafla frá 24. júlí til 29. ágúst að báðum dögum meðtöldum.


Skrifað: 24. júlí 2024

Verið er að fara í efnisskipti á hluta götunnar þannig að lokun á umferð um það svæði, sjá mynd fyrir neðan, er ekki umflúin.

Gatan verður opnuð aftur fyrir umferð á þessum kafla að þessari framkvæmd lokinni en mun verða frekar gróf yfirferðar og krefst þess að aðilar sem fari um götuna sýni fyllstu varúð.

Í framhaldinu verður farið í endurnýjun lagna í seinni helming götunnar og verða því þrengingar í gildi áfram um götuna eftir að lokun lýkur.

Notendur eru beðnir um að sýna því skilning að ekki er um aðra leið að velja en að loka fyrir á meðan framkvæmdir standa yfir. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.