Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Lýðhá­skólinn á Flat­eyri getur bætt við sig 2-4 nemendum á vorönn

Kennsla hófst við Lýðhá­skólann á Flat­eyri 20. sept­ember síðast­liðinn með 29 nemendum á tveimur náms­brautum. Skólinn getur bætt við sig 1-2 nemendum í hvora náms­braut á vorönn.


Skrifað: 14. nóvember 2018

Auglýsingar

Á námsbrautinni Hafið, fjöllin og þú miðar námið að því að upplifa náttúruna á nýjan hátt með því  að ferðast um hana, vinna með hana, nýta hana og kanna á öruggan hátt. Stór hluti námsins fer fram utan dyra í öllum veðrum og við hinar ýmsu aðstæður.

Á námsbrautinni Hugmyndir, heimurinn og þú miðar námið að því að þroska og þróa nemendur sem skapandi einstaklinga þar sem þeir öðlast þekkingu og færni í ferlum skapandi starfs allt frá hugmyndavinnu, yfir í framkvæmd og miðlun.

Lýðháskólinn á Flateyri er samfélag nemenda og kennara sem býður fólki tækifæri til að þroskast og mennta sig í samstarfi við íbúa á Flateyri. Einkunnarorð skólans eru frelsi, þekking og þroski.

Í Lýðháskólanum á Flateyri hefur fólk frelsi til menntunar út frá sínum einstaklingsbundnu forsendum. Því byggir skólinn ekki á prófum, einkunnum eða gráðum, heldur skapar hann nemendum sínum aðstæður og umgjörð til náms og menntunar. Ábyrgð á náminu er nemandans þar sem megináherslan er á að uppgötva og styrkja þá einstöku hæfileika sem hver og einn býr yfir í umhverfi sem er fullt af áskorunum en um leið ríkt af stuðningi, endurgjöf og samvinnu.

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember n.k.  en kennsla á vorönn hefst þann 7. janúar.

Hver sem náð hefur 18 ára aldri við upphaf námsannar getur sótt um skólavist við Lýðháskólann á Flateyri. Við leitum eftir nemendum sem eru áhugasamir, viljugir og tilbúnir til að taka þátt, deila ábyrgð og prófa eitthvað nýtt.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsvæði skólans

Vinsamlega hikið ekki við að hafa samband ef frekari upplýsinga er þörf.