Lyfja Patreksfirði - Sala og þjónusta
Lyfja leitar að starfsmanni í afgreiðslu í Lyfju á Patreksfirði.
Um er að ræða hlutastarf við sölu og afgreiðslu á virkum dögum.
Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.
Skrifað: 14. ágúst 2023
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er frá 12-17:30 virka daga eða eftir samkomulagi.
Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar veitir Ramon Flavià Piera, forstöðumaður útibús í síma: 456 1222 og Jónas Þór Birgisson, lyfsali í síma: 456 3009.