Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Menn­ing­ar­hátíð Café Dunhaga í Tálkna­firði

Rithöf­undar, skáld og sviðslista­menn stíga á stokk í gamla samkomu­húsinu Dunhaga sem er eitt af elstu samkomu­húsum landsins en það var vígt árið 1933. Í dag rekur Dagný Alda veit­inga­stað á neðri hæð hússins en hún er núver­andi eigandi þess. Uppi á lofti er sjálfur samkomu­sal­urinn þar sem menn­ing­ar­há­tíðin fer fram.


Skrifað: 10. júní 2021

Auglýsingar

Dagskráin hefst laugardaginn 12. júní kl. 20:30 og er öllum opin og ókeypis aðgangur. Listamennirnir munu lesa, sýna og spjalla um verk sín við gesti. Það er von að íbúar Vestfjarða sem og ferðamenn geti notið góðs af dagskránni.

Frekari upplýsingar veitir Hlín Agnarsdóttir, sími 863 7153.

Laugardagurinn 12. júní – Dagný Maggýjar rithöfundur talar um bækur sínar sem eru orðnar sex talsins m.a. Bruninn í Skildi 1935 og Á Heimsenda en í henni fjallar Dagný um sögu móður sinnar sem hún missti í sjálfsvígi.

Föstudagurinn 18. júní – Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og sviðslistafræðingur skrifaði m.a. Hilduleik 2020. Í þetta sinn ætlar hún að tala um og lesa upp úr nýrri bók sem væntanleg er í haust og fjallar m.a. um dvöl hennar í Tálknafirði þegar hún var þar í sveit sem barn.

Laugardagurinn 19. júní – Elísabet Jökulsdóttir skáldkona er landsfræg fyrir ljóð sín og smásögur. Í þetta sinn talar hún um og les upp úr Aprílsólarkuldi en fyrir þá bók hlaut hún Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020.

Föstudagurinn 25. júní – Þorvaldur Kristinsson rithöfundur hefur m.a. skrifað ævisögu Lárusar Pálssonar leikara og Helga Tómassonar listdansara. Hér ætlar hann að tala um bók sína Ef vin þú átt sem hann skrifaði 1994 um Aðalheiði Hólm Spans frá Eysteinseyri í Tálknafirði en bókin verður endurútgefin í ár.

Föstudagur og laugardagur 2. – 3. júlí – Bjarni Snæbjörnsson sviðslistamaður á rætur að rekja til Tálknafjarðar. Nú frumsýnir hann einleikinn Góðan dag faggi í samstarfi við Þjóðleikhúsið sem er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir.

Föstudagurinn 9. júlí – Anton Helgi Jónsson er eitt af afkastamestu ljóðskáldum þjóðarinnar og stendur fyrir ljóðavefnum anton.is. Síðasta ljóðabók hans heitir Handbók um ómerktar undankomuleiðir. Eins og sönnu fjallaskáldi sæmir ætlar Anton Helgi að lesa ljóð og kvæði sem snúast um fjöll og fjallgöngur.

Laugardagurinn 17. júlí – Bergsveinn Birgisson er einn af okkar fremstu rithöfundum og verðlaunaður í bak og fyrir. Hann skrifaði m.a. Svar við bréfi Helgu og Lifandi lífslækur. Hér ætlar hann að tala um bók sína Leitin að svarta víkingnum.

Frekari upplýsingar er að finna á facebook síðunni Menningarhátíð í Café Dunhaga og á Facebook síðu Café Dunhaga