Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Minja­safnið að Hnjóti - sumarstarf

Hnjótur – Minja­safn Egils Ólafs­sonar leitar að jákvæðum, þjón­ustu­lund­uðum, skipu­lögðum og snyrti­legum einstak­lingum með hæfni í mann­legum samskiptum. Helstu verk­efni starfs­fólks felast meðal annars í leið­sögn um safnið, afgreiðslu í kaffiteríu og almennum þrifum.


Skrifað: 24. febrúar 2023

Starfsauglýsingar

Gott vald á íslenskri og enskri tungu er æskilegt og frekari tungumálakunnátta er kostur. Frítt húsnæði er í boði fyrir starfsfólk í 5 km. fjarlægð frá safninu. Eigið farartæki er kostur.

Frábært tækifæri fyrir áhugafólk um sögu, náttúru og menningu sunnanverðra Vestfjarða.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2023

Umsókn sendist á netfangið museum@hnjotur.is. Frekari upplýsingar gefur forstöðumaður safnsins í síma 465 1511.