Leikskóladeildin Klif
Viltu vera hluti af lifandi, faglegu og skemmtilegu samfélagi? Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa á leikskóladeildinni Klif í Patreksskóla í 100% stöðu.
Skrifað: 21. ágúst 2023
Við leitum að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfamanni með þekkingu og áhuga á skólastarfi. Patreksskóli vinnur með Uppbyggingarstefnuna að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna.
Starfssvið:
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2023
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, asdissnot@vesturbyggd.is og í síma 8630465. Umsóknir skulu berast á sama netfang.