Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

N4 á Vest­fjörðum!

Sjón­varps­stöðin N4 hefur verið á ferð um Vest­firði og fjallað um öflugt atvinnulíf, ferða­þjón­ustu og samfé­lögin m.a. í Vest­ur­byggð. Þætt­irnir eru unnir í samstarfi við Vest­fjarða­stofu.


Skrifað: 27. nóvember 2020

Fréttir

Hér eru tenglar í nokkra þætti:

Landsbyggðir – Atvinnulífið á Vestfjörðum 3

Rætt við Rebekku Hilmarsdóttur bæjarstjóra í Vesturbyggð og Sigurð Pétursson, framkvæmdastjóra hjá Arctic Fish.

Atvinnupúlsinn á Vestfjörðum – 3. þáttur

Meðal annars er rætt við Skjöld Pálmason hjá Odda hf, Gunnþórunni Bender hjá Westfjords Adventures og Aðalbjörgu Þorsteinsdóttur hjá Villimey

Atvinnupúlsinn á Vestfjörðum – 4. þáttur

Fjallað um Íslenska Kalkþörungafélagið á Bíldudal ásamt því að skoða aukin umsvif og framkvæmdir á Bíldudalshöfn. Einnig rætt við Barða Sæmundsson hjá Loga ehf og fjallað um fjölskyldufyrirtækið Tungusilung á Tálknafirði.

Atvinnupúlsinn á Vestfjörðum – 5. þáttur samantekt

Að Vestan á Vestfjörðum – Opnun dýrafjarðarganga

Fjallað um Dýrafjarðargöng og opnun þeirra. Rætt m.a. við Guðrúnu Önnu Finnbogadóttur, verkefnastjóra hjá Vestfjarðastofu og Sigríði Björg Gísladóttur eiganda Hótel West á Patreksfirði.