Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Niður­felling gjalda vegna rösk­unar á starfi

Á fundi bæjar­stjórnar þann 25. mars s.l. var samþykkt að ekki verði innheimt gjöld fyrir þjón­ustu sem ekki er innt af hendi vegna útbreiðslu Covid-19.


Skrifað: 30. mars 2020

Fréttir

Reikningar vegna leikskóla, leikskóladeildar og skólamötuneytis fyrir apríl verða sendir út þegar komið hefur í ljós hversu mikil áhrif COVID-19 mun hafa á skólastarf næsta mánuðinn. Leiðréttingar vegna mars verða gerðar á sama tíma og reikningar þá lækkaðir í samræmi við skerta þjónustu.

Reikningar vegna frístundar eru alltaf sendir eftirá, og því munu þeir reikningar berast áfram til þeirra sem hafa verið að nýta þjónustuna.