Nú er að birta til og koma sumar
Þessi verkefni eru eingöngu hluti þeirra framkvæmda sem Vesturbyggð vonast eftir að komist til framkvæmda í sumar. Það er ósk okkar að íbúar taki vel við sér og hjálpi okkur að gera sveitarfélagið betra með því að huga sjálf að því að bæta umhverfi okkar.
Skrifað: 22. apríl 2020
Þegar vor er í lofti fá flestir þá tilfinningu að vilja fara út til að fegra og bæta umhverfi sitt. Það er nákvæmlega þannig sem starfsfólki Vesturbyggðar líður nú þegar að sumarið er á næsta leiti. Við ætlum að vinna ýmis verk nú í sumar sem eiga að gera sveitarfélagið okkar öruggara og hreinna.
Við ætlum að vinna að mörgum af þeim ábendingum sem fram komu í umhverfisgöngum sem fram fóru síðasta haust, ásamt því að sinna mörgum verkum sem enn eru óunnin frá fyrri tíð.
Holuviðgerðir munu byrja á næstu vikum, en sumar götur á bæði Patreksfirði og Bíldudal eru mjög lélegar eftir veturinn. Lögð verður megin áhersla á þær götur þar sem viðgerðarvinna vegna fráveitu eða vatnsveitu hafa verið undanfarið.
Götu og gangstétta hreinsun mun fara fram á Patreksfirði og Bíldudal seinni hluta maí. Svipaðri aðferð verður beitt við hreinsun og undanfarin ár, þar sem fenginn verður stór sópur sem sinnir þessum verkum fyrir okkur og fer yfir svæðin.
Gangstéttar verða vonandi fyrirferðamiklar þetta sumarið og við að sjálfsögðu reiknum með góðu og þurru sumri þannig að hægt verði að steypa og leggja stéttar í samræmi við okkar óskir þannig að næsta haust verði búið að klára Aðalstrætið á Patreksfirði frá apóteki niður að Þórsgötu ásamt því að skipta út ónýtum gangstéttum frá apóteki að Landsbanka. Þá er líklegt að við munum fara af stað með nýja gangstétt við enda Friðþjófstorgs. Ný göngubrú er tilbúinn til niðursetningar yfir Mikladalsá við Loga en núverandi brú er orðinn hættuleg. Farið verður í það á næstu dögum að setja nýju brúna niður en vonast er eftir að hún verði mun betri fyrir augað en núverandi brú ásamt að sjálfsögðu að verða mun öruggari en sú sem fyrir er. Skipt verður um tréverk við gangstétt á steyptum stoðvegg ofan Strandgötu, það verk verður líklega unnið í samvinnu við vinnuskóla sem tekur til starfa í byrjun júní og mun sú framkvæmd væntanlega ekki klárast fyrr en aðeins er liðið á sumarið. Stefnt er að því að nýta vinnuskóla meira í málningarvinnu á götum og gangbrautum en verið hefur, ásamt því að vonast er eftir að hægt verði að vinna ýmsa aðra vinnu í sumar eins og t.d. gróðursetningar við tjaldstæði.
Við stefnum á að leggja gangstéttar við Kirkjuveg á Bíldudal og að ramma betur inn næsta nágrenni Bíldudalskirkju. Einnig verður lögð áhersla á að gera við gangstéttar þar sem vantar, eða þar sem sár hafa myndast vegna framkvæmda. Stéttin niður með Baldurshaga verður endurnýjuð þar sem vonast er eftir að hægt verði að koma í veg fyrir mikinn vatnsleka í kjallara með lagfæringu á þeirri hlið hússins. Farið verður af stað með vinnu við að leggja niður kantsteina við Hafnarbraut milli Byltu og hafnarsvæðis.
Farið verður af stað með að girða af skólasvæði á Bíldudal ásamt því að verið er að vinna í bættri lýsingu á leiksvæði neðan við skólann, jafnframt eru væntingar um að hægt verði að lýsa betur upp erfið gatnamót Dalbrautar, Lönguhlíðar og Tjarnarbrautar. Þessu samhliða er horft til þess að málaðar verði gangbrautir við ýmsa staði og settar góða merkingar við þær á sem flestum stöðum í sveitarfélaginu.
Svæðið við Patreksskóla þar sem sparkvöllur á að koma verður klárað í sumar, einnig verður unnið í lagfæringum á skólalóð að því marki sem hægt er. Sú vinna krefst sérþekkingar varðandi niðurlagnir en byrjað verður á lagfæringum á tröppum og handriðum þar sem það á við.
Farið verður í ýmis viðhaldsverkefni en af nægu er þar að taka. Við stefnum á að skipta um þakjárn að hluta á Patreksskóla, nýtt járn verður sett á hluta Byltu Bíldudal, nýtt lokahús vatnsveitu á Bíldudal verður klárað, gert verður við og málað í Bíldudalsskóla að utan, farið verður í viðhaldsvinnu utandyra á Skjaldborg, klárað verður að klæða Birkimel Barðaströnd, viðgerðir á göngubrúm, ásamt öðrum verkefnum sem liggja fyrir.
Þessi verkefni sem að framan greinir eru eingöngu hluti þeirra framkvæmda sem Vesturbyggð vonast eftir að komist til framkvæmda í sumar. Það er ósk okkar að íbúar taki vel við sér og hjálpi okkur að gera sveitarfélagið betra með því að huga sjálf að því að bæta umhverfi okkar.
Gleðilegt Sumar!