Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Ný lögheim­il­islög – Hvatning til íbúa

Vest­ur­byggð vill vekja athygli á því að þann 1. janúar 2019 taka gildi ný lög um lögheimili og aðsetur.

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laganna, nr. 80/2018, skal tilkynning um breyt­ingu á lögheimili innan lands og aðsetri gerð rafrænt eða á starfstöðvum Þjóð­skrár Íslands. Vest­ur­byggð mun því ekki lengur taka við tilkynn­ingum um breytt lögheimili.

Einfalt er að tilkynna um breyt­ingu á lögheimili hjá Þjóð­skrá Íslands.


Skrifað: 29. nóvember 2018

Auglýsingar, Fréttir

Séu einhverjir íbúar sveitarfélagsins í þeirri aðstöðu að geta ekki tilkynnt um breytingu á lögheimili innan lands og aðsetri með rafrænum hætti er unnt að fá leiðbeiningar og aðstoð í ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.

Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá. Vesturbyggð óskar eftir því að þeir íbúar sem hafa látið undir höfuð leggjast að tilkynna um breytingu á lögheimili sínu að bregðast við sem allra fyrst.

Spurningar og svör um lögheimili

  • Hvað er lögheimili? Lögheimili er sá staður þar sem einstaklingar eiga fasta búsetu. Ekki er heimilt að eiga lögheimili á fleiri en einum stað í senn. Þá er óheimilt að eiga lögheimili á Íslandi eigi viðkomandi lögheimili erlendis.
  • Hvað er föst búseta? Föst búseta er sá staður þar sem einstaklingur hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og er svefnstaður hans þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna náms, orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðstæðra atvika.
  • Hvað er aðsetur? Aðsetur er tímabundin búseta í íbúð eða eftir atvikum húsið, við tiltekna götu eða í dreifbýli, sem skráð er sem íbúðarhúsnæði í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands og hefur staðfang.
  • Geta hjón átt sitthvort lögheimilið? Frá og með 1. janúar 2019 verður hjónum heimilt að eiga sitthvort lögheimilið, kjósi þau það. Er þá átt við þær aðstæður þegar hjónin eru bæði sammála um slíkt fyrirkomulag og skulu þau bæði undirrita tilkynningu annars þeirra um breytt lögheimili. Meginreglan verður þó áfram sú að hjón í samvistum skuli hafa sama lögheimili enda er það talið í samræmi við afstöðu og raunveruleika meginþorra hjóna.
  • Hvenær og hvar skal tilkynna flutning? Tilkynna skal um breytt lögheimili eigi síðar en sjö dögum eftir að breytingar á búsetu eiga sér stað. Einungis er heimilt að skrá nýtt lögheimili fjórtán daga aftur í tímann. Sama regla gildir um tilkynningar um aðsetur.
  • Getur verið óvissa um lögheimili? Leiki vafi á því hvar föst búseta einstaklings er, t.d. vegna þess að hann býr á fleiri en einum stað og í fleiri en einu sveitarfélagi, skal hann eiga lögheimili þar sem hann dvelst meiri hluta árs. Dveljist hann ekki meiri hluta árs í neinu sveitarfélagi skal hann eiga lögheimili þar sem hann stundar aðalatvinnu sína enda hafi hann þar búsetu. Um er að ræða aðalatvinnu þegar hún gefur tvo þriðju hluta af árstekjum eða meira.