Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Nýr bæjar­stjóri tekur til starfa

Rebekka Hilm­ars­dóttir hefur tekið til starfa sem bæjar­stjóri Vest­ur­byggðar.


Skrifað: 1. október 2018

Fréttir

Rebekka er fædd og uppalin í Kollsvík og hefur síðustu ár unnið sem lögfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Rebekka er nú flutt á Patreksfjörð ásamt eiginmanni sínum, Erni Hermanni Jónssyni, og syni þeirra.