Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Nýr leikskólastjóri
Bergdís er fædd og uppalin á Patreksfirði og flutti heim í fyrra eftir að hafa búið í Danmörku í 14 ár. Þar lauk hún m.a. doktorsprófi í íslenskum miðaldabókmenntum, rak eigið fyrirtæki og vann við kennslu og viðburðarstjórnun. Bergdís kemur nú síðast úr starfi sem umsjónarkennari við Patreksskóla og á þrjú börn á leikskólaaldri svo hún er ekki ókunn foreldrum á svæðinu.
Við bjóðum Bergdísi velkomna til starfa.