Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Nýsköp­un­ar­keppni Sjáv­ar­út­vegsklasa Vest­fjarða

Hafsjór af hugmyndum er nýsköp­un­ar­keppni sjáv­ar­út­vegsklasa Vest­fjarða auk styrkja til háskóla­nema á fram­halds­stigi. Þetta er einstakt tæki­færi til að hrinda góðum hugmyndum í fram­kvæmd og fá til þess styrk og aðstöðu hjá vest­firskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Megin mark­miðið er að efla sjáv­ar­útveg á Vest­fjörðum og koma með ferskar hugmyndir inn í þessa rótgrónu atvinnu­grein.


Skrifað: 18. mars 2020

Auglýsingar, Fréttir

Vestfirsk sjávarútvegsfyrirtæki vilja nú sem fyrr vera í fararbroddi í framleiðslu á sjávarfangi. Þau vita hversu mikilvægt er að vera fyrstur með nýjungar og auka verðmæti alls sjávarfangs sem kemur að landi sem og ónýttum auðlindum sjávar.  Það er liður í sjálfbærni fyrirtækjanna að búa yfir nýjustu þekkingu, hæfileikaríku starfsfólki og skapa aukin verðmæti fyrir þá auðlind sem þau hafa fengið umboð til að nýta.

Markmiðið með nýsköpunarkeppninni er að:

  • Auka nýsköpun.
  • Hvetja starfandi fyrirtæki, frumkvöðla og nema til nýsköpunar.
  • Skapa ný og eftirsóknarverð störf í sjávarútvegi eða tengdum greinum.
  • Auka virði og framlegð úr því hráefni sem berst í land á Vestfjörðum sem og ónýttum auðlindum.

Háskólaverkefnin geta verið á mörgum sviðum sem stuðla að aukinni þekkingu í sjávarútvegi og samfélagslegum áhrifum sjávarútvegs.

Markmiðið með háskólaverkefnunum er að:

  • Hvetja til nýsköpunar.
  • Skapa ný og eftirsóknarverð störf í sjávarútvegi eða tengdum greinum á Vestfjörðum.
  • Afla þekkingar byggðum á vísindalegum grunni um sjávarbyggðir Vestfjarða.

Hér er opið fyrir masters- og doktorsnema að vinna að verkefnum í náttúru-, og tæknigreinum sem og í viðskipta – og félagsvísindum í tengslum við sjávarútveg. Það er því mjög breytt svið fræðigreina sem geta komið að þessum verkefnum.

Allar nánari upplýsingar: https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/hafsjor-af-hugmyndum

Fyrirtækin sem standa að sjávarútvegsklasa Vestfjarða eru Drangur á Drangsnesi, Fiskvinnslan Íslandssaga á Suðureyri, Hólmadrangur á Hólmavík, Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal, Jakob Valgeir í Bolungavík, Kampi á Ísafirði, Klofningur á Suðureyri og Oddi hf á Patreksfirði.  Verkefninu er ætlað að styrkja sjávarútveg á öllum Vestfjörðum með styrk til námsmanna, frumkvöðla og sprotafyrirtækja.