Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Opið hús Rauða krossins

Í kjölfar þess hörmu­lega slyss sem átti sér stað í gær hefur borist aðstoð frá áfalla­hjálp­ar­t­eymi Rauða kross Íslands, sem mun hafa aðstöðu í safn­að­ar­heimili Patreks­fjarð­ar­kirkju.


Skrifað: 31. maí 2021

Auglýsingar

Rauði krossinn býður alla íbúa velkomna til opins húss í safnaðarheimilinu frá klukkan tólf í dag og fram eftir kvöldi, þar er boðið upp á kaffi og spjall, bæði fyrir einstaklinga og hópa. Þau sem þess óska geta fengið einstaklingsviðtal með aðila úr áfallarhjálparteyminu.

Allir íbúar eru hvattir til að líta við og veita hverjir öðrum stuðning.