Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Opnun­ar­tími Ráðhúss takmark­aður

Í Ráðhúsi Vest­ur­byggðar hefur verið gripið til ýmissa aðgerða til að bregðast við COVID-19 faraldr­inum og meðal þeirra er að stytta opnun­ar­tíma til að verja bæði starfs­fólk og viðskipta­vini.


Skrifað: 18. mars 2020

Auglýsingar

Frá og með miðvikudeginum 18. mars verður Ráðhús opið frá kl. 10-12 alla daga. Við viljum benda á að hægt er að senda öll erindi á vesturbyggd@vesturbyggd.is

Einnig er hægt að finna frekari upplýsingar um störf, netföng og símanúmer starfsmanna með því að smella hér.

Vesturbyggð beinir þeim tilmælum til íbúa að heimsóknir í ráðhúsið verði í algeru lágmarki og komi ekki nema brýn nauðsyn sé. Flest erindi er unnt að afgreiða í gegnum síma, með tölvupósti eða á fjarfundi.