Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Orðsending til íbúa á sunn­an­verðum Vest­fjörðum

Vegna COVID-19  farald­ursins er mikil­vægt að við íbúar á sunn­an­verðum Vest­fjörðum stöndum saman og hugum að velferð allra í okkar samfé­lagi. Vilja undir­rit­aðar stofn­anir og félaga­samtök hvetja íbúa til að huga að náunga sínum. Félags­þjón­usta, lögregla, heil­brigð­is­stofnun og Þjóð­kirkja þekkja vel til skjól­stæð­inga sinna og reyna að sinna öllum vel í því ástandi sem við tökumst nú á við.


Skrifað: 6. apríl 2020

Fréttir

Til þess að fyrirbyggja að einhver sem er einangraður og/eða þarfnast þjónustu fari fram hjá okkur, biðlum við til almennings um að huga að nágrönnum og ættingjum og láta vita ef grunur leikur á að einhver þurfi á stuðningi að halda. Einnig á þetta við ef einhver þarf á einhverju viðviki/aðstoð að halda svo sem að útvega aðföng eða hvað annað.

Við erum öll almannavarnir.

Hafa má samband við  Félagsþjónustuna í síma 450 2300 eða netfangið arnheidur@vesturbyggd.is eða Kristján Arason sóknarprest í síma 846 6569.

  • Félagsþjónusta í Vestur Barðastrandasýslu
  • Patreksfjarðarprestakall
  • Lögreglan á Vestfjörðum
  • Rauði krossinn á sunnanverðum Vestfjörðum
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
  • Björgunarsveitirnar
  • Lions á Patreksfirði

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Arnheiður Jónsdóttir arnheidur@vesturbyggd.is / 450 2300