Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Rafrænn íbúa­fundur um samein­ing­armál

Bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar hefur ákveðið að láta fram­kvæma grein­ingu og könnun á hagkvæmni samein­ingar Vest­ur­byggðar við Tálkna­fjarða­hrepp. Boðað er til rafræns íbúa­fundar mánu­daginn 26. apríl kl. 17:30-19:00. Á fund­inum verður kynning á verk­efninu og leitað sjón­ar­miða íbúa um hvaða atriði skipta mestu máli, ef til samein­ing­ar­við­ræðna kemur.


Skrifað: 19. apríl 2021

Auglýsingar

Fundurinn verður rafrænn í Zoom-fjarfundakerfinu. Til að fylgjast með kynningum og taka þátt í umræðum þarf því að lágmarki nettengda tölvu með hátalara og hljóðnema. Æskilegt er að þátttakendur séu einnig með vefmyndavél svo aðrir fundarmenn sjái við hvern þeir eru að tala. Fundinum verður einnig streymt á facebook síðu Vesturbyggðar og upptökur af kynningu verða gerðar aðgengilegar á heimasíðu Vesturbyggðar.

Hér er slóð á fundinn á Zoom, en fundurinn opnar um kl. 17:20 þann 26. apríl.

https://us02web.zoom.us/j/89766844132?pwd=c3h1SW5XNmV5U2JiM3p3N2xIOTlqZz09