Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Rekstr­ar­stjóri - sumaraf­leysing

Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða leitar að jákvæðum og áhuga­sömum starfs­krafti í afleys­ingu fyrir rekstr­ar­stjóra á heilsu­gæsl­unni á Patreks­firði. Ráðn­ing­ar­tími er frá seinni­hluta maí og út ágúst eða eftir nánara samkomu­lagi.


Skrifað: 21. febrúar 2023

Starfsauglýsingar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mönnunar- og rekstrarleg ábyrgð rekstrardeildar
  • Sinnir og útdeilir verkefnum sem heyra undir deildina
  • Sér um innkaup á hjúkrunarvörum
  • Rekstur húsnæðis á Patreksfirði

Hæfniskröfur

  • Reynsla sem nýtist í starfi, nám og/eða reynsla af mannaforráðum eða stjórnun æskileg
  • Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
  • Jákvæðni og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Metnaður og ábyrgð í starfi
  • Íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2023

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Hermann Grétar Jónsson, Rekstrarstjóri – hermann@hvest.is – 450 4200

Smelltu hér til að sækja um starfið