Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Sagna­brunnur Vest­fjarða kynntur

Vefurinn Sagna­brunnur Vest­fjarða verður kynntur í Fræðslumið­stöð Vest­fjarða, Suður­götu 12, Ísafirði fimmtu­daginn 21. febrúar, kl. 16:00 – 17:00.


Skrifað: 20. febrúar 2019

Fréttir

Fimmtudaginn 21. febrúar mun Kjartan Ólafsson opna vefinn Sagnabrunnur Vestfjarða, sem stofnaður hefur verið af prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar við Háskóla Íslands og Safni Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri. Allir eru velkomnir á kynninguna.

Markmið Sagnabrunnsins er að safna saman óbirtu efni, sem liggur í skjalasöfnum og einkaeigu á einn stað sem opinn er öllum, og miðla því til fólks, ferðaþjónustuaðila, skóla og annarra stofnana sem öll geta notað þetta efni að eigin vild. Hér er því um að ræða upplýsingaveitu fyrir almenning er varðar líf fólks á Vestfjörðum gegnum aldir. Allir geta sent inn sögur, sagnir, örnefni og lýsingar af lífi fólks og atburðum héðan af svæðinu, sem það á í fórum sínum og vill koma á framfæri við almenning, og allir geta lesið þetta efni sér til ánægju og fróðleiks.

Kjartan Ólafsson og Búnaðarsamband Vestfjarða hafa góðfúslega veitt leyfi til þess að fyrsta efnið sem sett verður á vefinn er vinnuhandrit Kjartans sem inniheldur lýsingar, sögur og sagnir úr Vestur–Ísafjarðarsýslu og Vestur–Barðastrandarsýslu er hann safnaði og setti saman á vegum Búnaðarsambandsins.

Frekari upplýsingar veitir Valdimar J. Halldórsson í síma 845 5518.