Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Yfir­lýsing vegna aftur­kallana laxeld­is­leyfa

Sameig­inleg yfir­lýsing Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps  í ljósi frétta af aftur­köllun leyfa til laxeldis í Patreks­firði og Tálkna­firði.


Skrifað: 28. september 2018

Fréttir

Sveitarfélögin krefjast þess að gripið verði til tafarlausra aðgerða, eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi rekstrarleyfi sem Matvælastofnun veitti Fjarðarlaxi og Artic Sea í Patreksfirði og Tálknafirði.  Áhrif úrskurðarins eru gríðarleg á atvinnulíf og samfélög á sunnanverðum Vestfjörðum og verulegir hagsmunir í húfi.

Frá upphafi hafa sveitarfélögin gert þá skýlausu kröfu að faglega sé staðið að veitingu leyfa ásamt því að rannsóknum og virku eftirliti sé sinnt.  Lögð hefur verið áhersla á að byggja upp ábyrga atvinnugrein í sátt við menn og náttúru og eru það því mikil vonbrigði komin sé upp sú staða að líf fólks og framtíðaráform séu sett í uppnám.

Ákall sveitarfélaganna er að þetta mál verði sett í algjöran forgang hjá ríkisstjórn og alþingi þannig að hægt verði að lágmarka þann skaða sem nú þegar er orðinn.