Hoppa yfir valmynd

Samn­ingur um sérhæfða velferð­ar­þjón­ustu

Þórdís Sif Sigurð­ar­dóttir, bæjar­stjóri, ásamt stjórn­endum sjö annarra sveit­ar­fé­laga á Vest­fjörðum, hefur undir­ritað samning um sameig­in­legan rekstur sérhæfðrar velferð­ar­þjón­ustu á Vest­fjörðum.


Skrifað: 11. október 2023

Fréttir

Von er á að Strandabyggð bætist í hópinn áður en langt um líður. Samningurinn var undirritaður á Fjórðungsþingi Vestfjarða síðastliðinn föstudag en það var einmitt á Fjórðungsþingi síðasta árs sem vinna hófst við að kanna grundvöll þess að setja á stofn samþætta þjónustu innan Vestfjarða, sem hefði með höndum þjónustu við fatlað fólk, barnaverndarþjónustu og samræmda móttöku flóttafólks.

Ísafjarðarbær er leiðandi samfélag samkvæmt samningnum og gefa hin sveitarfélögin honum vald til ákvarðanatöku í málaflokknum. Almenn velferðarþjónusta verður þó áfram rekin hjá sveitarfélögunum og skiptist niður á fjögur velferðarsvæði. Á norðursvæðinu verða þau tvö; annars vegar Ísafjarðarbær og Súðavík og hins vegar Bolungarvíkurkaupstaður, Á Ströndum mynda Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð sameiginlega velferðarþjónustu og á suðursvæðinu er það Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur. Samningurinn gildir til eins árs.