Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Sérfræð­ingur hjá Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa hjá Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga en sjóð­urinn er hluti af skrif­stofu sveit­ar­stjórn­ar­mála í ráðu­neytinu. Athygli er vakin á því að í samræmi við byggða­stefnu stjórn­valda er starfið auglýst án stað­setn­ingar.


Skrifað: 24. júní 2021

Starfsauglýsingar

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðingnum er ætlað að vinna að útreikningi framlaga sjóðsins, að greiningum, upplýsingaöflun og framsetningu tölfræðiupplýsinga og gerð reiknilíkana. Jafnframt er sérfræðingnum ætlað að kom að verkefnum er snúa að rekstri sjóðsins og ritun fundargerða ráðgjafarnefndar sjóðsins.

    Hæfniskröfur

    • Háskólamenntun á sviði viðskipta, hagfræði eða sambærilegt
    • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
    • Góð þekking á málefnum sveitarfélaga æskileg
    • Góð reynsla af vinnu með fjárhagsupplýsingar
    • Mjög góð kunnátta í excel bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga og gerð líkana
    • Góð íslenskukunnátta og hæfni í framsetningu upplýsinga
    • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp
    • Þjónustulund, jákvæðni og góð hæfni í samskiptum
    • Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar

    Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2021

    Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert. Ráðuneytið hvetur einstaklinga óháð kyni til að sækja um starfið. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

    Starfshlutfall er 100%. Nánari upplýsingar veitir Guðný Elísabet Ingadóttir, netfang gudny.e.ingadottir@srn.is, sími 545 8200

    Smelltu hér til að sækja um starfið