Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Sérkennslu­stjóri - Araklettur

Við erum að leita að leik­skóla­kennara eða öðrum með sambæri­lega/nýti­lega menntun, til að gegna 50% starfi sérkennslu­stjóra og 50% starfi leik­skóla­kennara, við leik­skólann Araklett á Patreks­firði.


Skrifað: 9. febrúar 2023

Starfsauglýsingar

Um leikskólann

Leikskólinn Araklettur er í rífandi uppbyggingu eins og samfélagið allt á Patreksfirði og við leitum að drífandi, hugmyndaríkum og lausnarmiðuðu starfsfólki til að taka þátt í þessari uppbyggingu með okkur. Á leikskólanum Arakletti eru núna 40 börn en fyrirhuguð er stækkun og breytingar á leikskólanum sem mun gera pláss fyrir allt að 20 börn í viðbót. Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og vinátta og endurspeglast þau vel í starfi leikskólans, þar sem áhersla er lögð á frjálsan leik sem náms- og þroskaleið barnsins. Við vinnum markvisst með að efla málþroska, félagsþroska og ekki minnst að minnka lætin, til að ýta undir tækifærin til náms og þroska í gegnum leikinn. Við erum Vináttuleikskóli og erum að eflast í hugmyndafræði Vináttu/Blæs þar sem fjölbreytileiki og umburðarlyndi eru hornsteinar vináttunnar og viljum við að það endurspeglist í öllu okkar starfi. Við höfum mikið nýtt AEPS og hefur það reynst okkur vel, ekki væri verra ef þú þekktir til þess.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Bera ábyrgð á og stjórna skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum, ásamt leikskólastjóra.
  • Að vera fagleg umsjónarmanneskja sérkennslu í leikskólanum og annast því frumgreiningu barna og sjá um ráðgjöf og aðra fræðslu tengdri sérkennslu til starfsmanna leikskólans.
  • Vinna í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna og fleiri, samkvæmt lögum um smþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, framhaldsnám í sérkennslufræðum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Frumkvæði í starfi, samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2023

Laun eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttafélags og sambands íslenskra sveitafélaga.

Allir einstaklingar, óháð kyni og búsetu eru hvattir til að sækja um starfið. Umsókn fylgi ferlisskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342