Skipulagsauglýsing – Hvestuvirkjun við Arnarfjörð
Auglýst er tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hvestuvirkjunar við Arnarfjörð ásamt umhverfisskýrslu. Breytingin felur í sér að gert er ráð fyrir nýrri stíflu Hvestustíflu 2 og nýju stöðvarhúsi.
Skrifað: 1. febrúar 2019
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingu á eftirfarandi deiliskipulagsáætlun: Breytingin felur í sér að gert er ráð fyrir nýrri stíflu Hvestustíflu 2 og nýju stöðvarhúsi. Stíflan verður 25 m löng og hæsti punktur hennar verður í 18 m.y.s. Byggingarreitur stöðvarhúss verður 50 m2. Uppsett afl virkjunar verður allt að 195 kW.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með mánudeginum 21. janúar til 4. mars 2019.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til 4. mars 2019.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.