Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Breyting á aðal­skipu­lagi Vest­ur­byggðar

Bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar samþykkti á fundi sínum þann 29. október að auglýsa lýsingu vegna fyrir­hug­aðrar breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Vest­ur­byggðar 2006-2018 á Bíldudal í samræmi við 36. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.


Skrifað: 3. nóvember 2020

Skipulög í auglýsingu

Aðalskipulagsbreytingin felst í breytingu á landnotkun í þéttbýli Bíldudals á svæði við Hafnarbraut. Núverandi íbúðarsvæði er stækkað niður á landfyllingu og um leið minnkar nærliggjandi opið svæði til sérstakra nota. Ástæða breytingarinnar er að rýmka fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis innan Bíldudals.

Skipulagslýsingin sem er sett fram í greinargerð verður til sýnis á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði og á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is.

Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við við skipulagslýsinguna og skal þeim skilað skriflega á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patrekfirði eða á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is fyrir 3. desember n.k.

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300