Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Skipu­lagsmál Bíldu­dalur – opið hús

Opið hús verður um tillögur breyt­ingu á Aðal­skipu­lagi Vest­ur­byggðar 2006-2018, Hafn­ar­braut á Bíldudal og deili­skipu­lag sama efnis.


Skrifað: 14. desember 2020

Skipulög í auglýsingu

Breytingin á aðalskipulaginu felst í breyttri afmörkun á íbúðarsvæði við Hafnarbraut og það stækkað niður fyrir Hafnarbraut yfir á landfyllingu. Opið svæði til sérstakra nota Ú7 minnkar sem því nemur. Í deiliskipulagstillögunni er nánari skilgreining á fyrirætlunum.

Opna húsið verður haldið í aðstöðu bókasafnsins í Skrímslasetrinu á Bíldudal, fimmtudaginn 17. desember frá kl. 16:00-18:00.

Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta og kynna sér skipulagið. Tillagan verður síðan auglýst og gefst þá íbúum kostur að koma með skriflegar athugasemdir.

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300