Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Skipulagsmál Fiskeldi Seftjörn lóð 1 – opið hús
Opið hús verður um tillögur breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 og deiliskipulagi Seftjarnar lóðar 1. Breytingarnar fjalla báðar um iðnaðarsvæði við Seftjörn lóð 1 – fiskeldi.
Skrifað: 14. júlí 2020
Opna húsið verður haldið í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75, fimmtudaginn 16. júlí frá kl. 15:00-17:00. Byggingarfulltrúi verður á staðnum til að taka við spurningum.
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta og kynna sér skipulagið. Tillagan verður síðan auglýst og gefst þá íbúum kostur að koma með skriflegar athugasemdir.