Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Skipu­lagsmál Örlygs­hafn­ar­vegur – opið hús

Opið hús verður um tillögur breyt­ingu á Aðal­skipu­lagi Vest­ur­byggðar 2006-2018 og deili­skipu­lagi Látra­bjargs. Breyt­ing­arnar báðar fjalla báðar um breytta legu Örlygs­hafn­ar­vegar um Hvallátur. Opna húsið verður haldið hjá á bæjar­skrif­stofum Vest­ur­byggðar að Aðalstræti 75, miðviku­daginn 1. júlí frá kl. 15:00-17:00. Bygg­ing­ar­full­trúi verður á staðnum til að taka við spurn­ingum.

Allir áhuga­samir eru hvattir til þess að mæta og kynna sér skipu­lagið. Tillagan verður síðan auglýst og gefst þá íbúum kostur að koma með skrif­legar athuga­semdir.


Skrifað: 29. júní 2020