Skólastjóri Tálknafjarðarskóla
Vesturbyggð óskar eftir að ráða skólastjóra Tálknafjarðarskóla. Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla í nýjasta sveitarfélagi landsins.
Tálknafjarðarskóli er samrekinn grunn- og leikskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 35 nemendur, þar fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.
Einkunnarorð skólans eru jákvæðni – samvinna – skemmtun – þrautseigja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg forysta og skólaþróun
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans
- Samstarf við ýmsa aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla er skilyrði
- Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
- Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og þróun skólastarfs er kostur
- Leiðtogahæfni og metnaður
- Lipurð, hæfni og virðing í samskiptum ásamt góðu orðspori
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2024
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi, kynnisbréf og upplýsingar um umsagnaraðila. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Starfskjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna SÍ og FSL. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vesturbyggð aðstoðar við að finna húsnæði og veitir flutningsstyrk.
Nánari upplýsingar gefur Arnheiður Jónsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs. Umsóknir skal senda á vesturbyggd@vesturbyggd.is.